|
Hugmyndin að Lykkjufalli kviknaði hjá mér fyrir nokkrum árum þegar vinkona mín eignaðist barn. Hún átti í miklum vandræðum með að gefa barni sínu brjóstamjólk í fjölmenni. Það var ekki fyrr en ég hlut styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2005 að ég lét verða að þeirri hugmynd að athuga hvort þörf væri á markaðnum fyrir fatnað sem auðveldar aðgang fyrir brjóstagjöf.Skoðanakönnun sem ég gerði sannreyndi það. Með þessari hönnun vonast ég til að uppfylla að einhverju leyti þarfir markhópsins með því að auðvelda aðgengi fyrir brjóstagjöf í fatnaði.Útlitslega séð er fatnaðurinn hönnunarvara sem nota má áfram meðfram uppeldi barnsins. Hönnunin hefur fengið góðar viðtökur og er nú einnig fáanleg í verslunum í Skandinavíu og New York. Sjá undir Retailers. Bestu kveðjur, Sigrún Baldursdóttir fatahönnuður Sigrún Baldursdóttir fædd 1980 Eigandi og hönnuður Lykkjufalls. Starfaði sem fatahönnuður árið 2006 hjá prjónafyrirtækinu Janus ehf. Sigrún hannaði starfsmannapeysur fyrir Þjóðminjasafnið fyrir vetur 2007. Hannaði einnig prototypur í þæfða ull fyrir fyrirtækið Glófi ehf. Sigrún tekur að sér ýmis verkefni og starfar einnig sem stílisti. Lauk námi sem textíl- og fatahönnuður úr Listaháskóla Íslands vorið 2005. Starfsþjálfun hjá Girault Totem Press Agency, París, France. Starfaði meðal annars á tískusýningum á París Fashion Week 2003. Sýningar Lykkjufalls: Apríl 2008 SHOWROOM Listasafn Reykjavíkur Febrúar 2008 Copenhagen Internationar Fashion Fair. Október 2007 Hönnun og heimili, Laugardalshöll Ágúst 2007 Copenhagen Internationar Fashion Fair. Hönnun og heimili, Laugardalshöll |
The consept for Lykkjufall came to my mind
few In apperance these clothes are like any other designed clothes that can be used further after breastfeeding is over. The design is sold in Scandinavia and New York. Please see Retailers. Best regards, Sigrun Baldursdóttir fashion designer.
Sigrún Baldursdóttir born 1980 Owner and designer of Lykkjufall. Has also worked as designer for the knitwear company Janus ehf in the year 2006. Sigrun is also a freelance stilist. Gratuated in the spring 2005 as textil- and fashion designer from the Iceland Academy of the Arts. Internship at Girault Totem Press Agency, París, France. Worked with them on fashion shows, Paris Fashion Week 2003. |
GARÐASTRÆTI 2 / 101 REYKJAVÍK / ICELAND